jæææja þááá Heiðaaaa
6. mars 2009
oseisei… ekki batnar blogggleði mín ahaha. Ekkert spennó að gerast held ég. Bara búin að vera í skúlen og heima og svona. Ekki verið skotin ennþá.. hvorki í strák né með byssu hehe shit hvað ég er fyndin. Hmm fór á íslenskt sveitaball með Á móti sól. Sæi það fyrir mér að ég hefði gert mér ferð í bæinn heima til að kaupa miða á Á móti sól ball hehe. Það var nú samt fínt. Fór í afmæli til frænku minnar hérna, haldið á kaffihúsi. Þekkti engan nema hana og kærastann hennar. Spjallaði aðeins við liðið þarna, voða fínt fólk, allt arkítektar hehe. Fór svo í afmæli tveimur dögum seinna og þar var einn af þeim sem var í afmæli frænku minnar. Litli litli heimur, að þessi tvö afmælisbörn sem ég þekki úr sitthvorri áttinni skulu þekkja sama gaurinn. Ef hann hefði ekki átt kærustu hefði ég tekið þessum sign. hehe… hmmm fer til mormor í Gautaborg í næstu viku jeij. Hitti þar mömmu og tótu litlu bróður dóttur mína. Hlakka mikið til. Kem svo til Íslands líklegast 7. apríl. Fer svo til Parísar með skólanum 1.-7. maí. Jibbííí.. verður stuð hehe. þeytingur á mér hehe.
skórnir mínir eru svartir.. þeir sem ég nota mest núna allavega… fyrir utan silfurlitu adidas skóna mína sem ég smelli mér í til að fara út í búð í. Fer alltaf að sofa allt of seint. ooooog ég blæs á mér hárið…. annars verð ég svo sveitt hahaha. E-ð fleira sem þið viljið vita?
Þangað til hmmm næst hvenær sem það nú verður… þið fylgist bara memmér á facebook hahaha.
B. Magdalena
jæææja þááá Stína.
16. febrúar 2009
Ætli maður verði ekki að hlýða stóru systur hehe. Svo langt síðan síðast að ég bara man ekki hvað hefur verið að gerast. Hmmm náði áfanganum sem ég var ekki viss um að ná.. jeij for boobies… djók. Hmmm fór í dýragarðinn í fríinu hehe… og bjó til vídejó úr myndunum sem ég tók… heimaföndur hahaha voðalega krúttlegt. Uuuuu sit hérna í skólanum… í tíma. Vorum að skila verkefni í dag eða svona uppkasti af því. Annar hópur kynnti verkefnið okkar og við kynntum verkefnið fyrir annan hóp. Mjög fyndin tækni. Svo má maður ekkert segja við krítíkinni sem maður fær fyrir verkefnið sitt. Búin að komast að því að ég þarf að fara að vera alvarlegri svo að þessir danir taki mig alveg trúanlega. Mest af gagnrýninni sem við fengum var e-ð sem ég var búin að segja að vantaði hjá okkur. Eeeen owell… gott að við skilum ekki fyrr en eftir viku aftur. hmmmm pabbi minn kom í heimsókn í nokkra klukkutíma núna á laugardaginn. Átti voða nice valentínusar dag með pabba mínum sumsé hehe. Fórum og skoðuðum allskonar… ég vildi sjá haf frúnna… og svona… fórum svo út að borða. Það var náttúrulega valantínusar dagur og við vorum beðin um að vera farin fyrir ákveðinn tíma og svona. Komum þarna inn og pabbi segir e-ð um að hann sé nú bara gamall karl þarna með…. og svo kom svona smá þögn og þjónustu stúlkan bara… jájájájájá…. haha og svo heyrðist í pabba… með dóttur minni… og hún svona aaah já OK… sjúkket hahahaha.
En annars bara frekar e-ð lítið að frétta… bara lífið… gengur bara sinn vanagang. Vakna alltof seint… fer í tölvuna… læri smá… kveiki á tv… borða.. fer allt of seint að sofa… fer í skólann þreytt hehe… tek vítamín… bara svona venjulegt e-ð.
hmmm það situr kínverskur strákur og starir á mig… það er soldið óþægilegt… en jæja
þangað til næst…. Britta
ooog enn er ég á lífi
27. janúar 2009
Jú góðan daginn…. hvað er að geeeerast hér??? eða meira þar! Allt kreisí á Íslandi. Nú er bara að vona að Ögmundur verði ekki heilbrigðisráðherra eða Steingrímur Joð frjármálaráðherra pjúff…. HVAÐ GERUM VIÐ ÞÁ???
Annars er ég bara á lífi í fríi hér í Kaupmannahöfn. Geri bara mest lítið á daginn og sef mikið hehe. Bara búin að fara í smá partý og hugguleg heit. Voða kósý bara hjá mér
Fór með Rögnu og Pálma á bar hérna í síðustu viku. Ekki sosssum frásögu færandi nema hvað að ég stóð þarna að spjalla við e-ð fólk, þá kom strákur upp að mér og horfði á mig sagði svo “BrittA?” og ég svona uuu Já… Þá var þetta danskur strákur sem hafði bætt mér við á mæspeis fyrir e-u síðan. Hann bara þekkti mig þarna á bar í Kaupmannahöfn í e-u fylleríis móki…. og mundi hvað ég heiti líka! Þetta var mjög súrrealískt. Hann hélt meira að segja að ég byggi á Íslandi núna. Hann samt góður að þekkja mig og þora að heilsa mér hahaha. Æjhh þetta var fyndið. Voðalega yndæll strákur.
Annars er fátt annað að frétta… jú ég fékk 10 í öðrum áfanganum mínum. Maður getur sko fengið -2,0,2,4,7,10 og 12. Hefði nú getað fengið tólf ef ég hefði ekki þurft að fresta ferðinni minni hingað út um viku… og hana nú. Á eftir að fá úr hinum áfanganum. Hann er svona staðist/fallið áfangi. Gæti alveg hafa klikkað í honum. En það er nú ekki heimsendir ef ég þarf að redda honum aftur hehe.
En annars bara allt gott að frétta… er að spá í að reyna að koma mér út úr húsi svona á næsta klukkutímanum… ætla aðeins að hlusta á fréttir fyrst hehehe.
Þangað til næst e´skurnar mínar…. Britta
á lífi
14. janúar 2009
já, ætli ég sé ekki bara á lífi hehe. Finnst greinilega ekkert voða skemmtilegt að blogga. Nú eru jólin búin og nýtt ár byrjað og allt á fullu. Jólin voru mjög fín… fyrir utan ákveðið drama, lækna heimsóknir og þess háttar. Fann hvers ég saknaði þegar ég kom til Íslands. Sakna vinanna minna, fjölskyldunnar minnar, að allir tali bara íslensku, að þekkja bara allt og alla og bara vera viss um allt og ekkert hehe. Held það sé nú ljóst að ég flytji nú heim aftur. Ísland!! best í heimi!
Sit hér í skólanum…. búin að sitja hér næstum samfleytt frá sunnudagsmorgni og verð hér bara þangað til á föstudaginn. Þurfti að fresta ferðinni minni hingað til dk út af smá lækna veseni… þannig að ég varð massívt á eftir og er að reyna að bæta það upp. Sólarhringurinn hjá mér er búinn að vera svona. Vakna kl 7, klæði mig og bursta tennur og svoleiðis, klæði mig og fer upp í skóla og er mætt hér um 9. Er svo hér í skólanum til ca tæplega þrjú að nóttu til. Kem heim og klæði mig úr öllu og leggst í rúmið. Vakna svo aftur kl 7 og mæti í skólann kl 9… og svo framvegis… Er soldið þreytt núna. Til að gera þetta soldið meira spennandi og skemmtilegt þá er ég með þessa blessuðu þrettándaflensu! …. en… maður er jú Íslendingur og harkar af sér. Þetta þarf að reddast þið skiljið og helst með flottri einkunn hehe. Þetta er jú búið á föstudaginn. Þarf svo að gera kynningu fyrir annan áfangann … er svo í fríi í næstum eina og hálfa viku jibbí… get bara sofið þá. Reyndar þá lúrði ég áfram smá í dag og vann heima soldið… var svo fruntalega illt í lungunum hmmmm…
jamm og jájá… svona lítur lífið mitt út eins og er hehe…
Þangað til næst… hvenær sem það nú verður… Brittfílus flosason!
Trallalallaraaa
15. desember 2008
mikið obboslega er ég slök í þessu bloggi hehe. En jæja… héðan er svona hitt og þetta að frétta. Ég ákvað að gifta mig, á von á tvíburum og er að byggja hús hér í úthverfi kaupmannahöfn. Erum rosa happy og ætlum að koma heim um jólin … verð jú að kynna gæjann fyrir familíunni og segja þeim að ég er að gerast múslimi. Er nú orðin 26… þarf að fara að huga að því að eiga fjölskyldu og þessháttar! Skráði mig á svona múslímska deiting síðu. Verst að ég þurfti að fara og láta gera mig að hreinni mey aftur. En hvað gerir maður ekki fyrir ástina. jamm og jájá… þar hafið þið það.
….ok… kannski ekki…. eða hvað? hver veit?
þangað til næst krakkar… Britta
Djamm
6. desember 2008
ahh verð að skrifa á meðan ég nenni því hehe. Var að koma heim af djamminu. Var á hörku djammi með tveimur kennurum mínum, einum gesta fyrirlesara og einni stelpu sem er með mér í skólanum. hehehe…. mjög skondið.
Dagurinn byrjaði sumsé á því að ég vaknaði um 11 eftir að hafa farið að sofa um svona fimm. Var að klára verkefni sem ég skilaði af mér í dag. Mætti svo í tíma kl 13 og sat líka þennan skemmtilega fyrirlestur hjá gæja sem er að hanna og vinna að olympíu svæðinu í London. Mjög áhugavert. Eftir þann fyrirlestur þá vorum við nemendurinr með kynningu á okkar verkefnum. Það tók aaaansi langan tíma….. fengum svo mikla gagnrýni á verkefnin af því að þetta er svona verkefni sem er í gangi alla önnina og núna eigum við að fara að hanna smáatriði og þessháttar. Við vorum sumsé í skólanum að hlusta á kynningar til níu í kvöld. Breski gaurinn var með þrjár rauðvíns flöskur með sér, svo þegar það voru eins og 4 verkefni eftir þá var fólk bara farið að djúsa hahaha. Eftir kynninguna þá fórum við öll á hverfispubbinn sem er beint á móti skólanum. Fengum þar pizzu og drykki. Svo fórum við á skólabarinn…. þeir sem voru eftir svona seint á kynningunni voru bara skiptinemar og ég og ein dönsk stelpa. Á skólabarnum urðu allir skiptinemarnir eftir. Ég, danska stelpan og kennararnir þrír fórum á kokteilbar sem heitir carribian… fengum þar voða fína kokteila og ég fékk óáfengan meira að segja hehehe og kennararnir borguðu allt hehe. Sátum þar örugglega til að verða þrjú í góðu stuði eða þangað til að barnum lokaði. Þá löbbuðum við upp á norrebro og þræddum e-a bari þar, en kennararnir eða aðallega einn… sá franski… var svo æstur í að fara að dansa, þannig að við fórum á stað sem heitir uuu.. bíddu… er að kíkja á hendina á mér til að sjá hvað stimpillinn segir…uuu Rust sýnist mér oooog þess má geta að einn kennaranna borgaði okkur öll inn haha 60 dkr á haus. Þetta er bara pjúra danssaður… byrjuðum í funkinu en færðum okkur svo upp í electroið hehe …. Og pjúfff hvað ég dansaði… dansaði og dansaði með fullum kennurum hahaha. aaahh þetta var yndislegt. Komst að því að þeir höfðu haldið kynningu á því hvað þeir væru að gera í þessum áfanga í Aarhus… og að þeir höfðu sýnt myndbandið mitt og fleira haha… og þeir voru bara ánægðir með það sem ég var að gera hehe… fullir kennarar… mjög fyndið. Ætti kannski líka að segja að þeir eru nú ekki gamlir, allir um þrítugt bara hehe. Einn danskur, einn franskur og svo breskur gesta fyrirlesarinn. Held svei mér að danska stelpan hafi farið í smá sleik við einn af kennurunum (þennan franska).
Frábært kvöld, og frábær dagur…
Jæja… ætla að fara að lúlla mér
Þangað til næst fallega fólk…. Britta
Obbosí
4. desember 2008
ahh gleymdi mér aðeins í letinni hehe. Er bara á fullu í skúlen. Á að skila tveimur dáltið stórum verkefnum á föstudaginn og þau eru bæði alveg ótrúlega skemmtileg. Soldið krefjandi en til þess er maður nú hér… læralæra læra hehe. Erum að hanna svæði í miðbæ kaupmannahafnar og við eigum að kynna hönnunarhugmyndina okkar á föstudaginn fyrir borgarstjóranum… samt ekki alvöru borgarstjóri… held ég alveg örugglega haha. Hitt verkefnið er líka hönnunarverkefni en á mun minni skala. Erum að hanna leikvöll fyrir unglinga. Erum samt aðallega að læra á hin ýmsu forrit til að koma hugmyndinni okkar á framfæri. Erum núna að læra á 3d studio max sem er svona þrívíddar forrit ótrúlega flott og hentugt. Vorum í svona miðannar uuu evaluation … metingu hmm kanniggi íslenskt orð. Áttum að kynna hugmyndina okkar og hönnun og sýna bara hvað við værum búin að gera. Fórum inn í fimm manna grúppum og svo var kennarinn, ein sem er að taka ph.d og svo tvær sem eru frá fyrirtæki sem hannar leiktæki… held þau hafi nú samt e-ð með þetta svæði að gera hehe man ekki alveg. En þetta gekk svona líka ljómandi vel
Verður langur dagur á morgun að reyna að klára allt pjúffedí puff
Ég á núna tvö jólaskraut eða tvennt jólaskraut… kanniggi alveg… hehe. Kom við í minni lokal verslunarmiðstöð hérna á Amager og sá líka þessar fínu svona pappastjörnur á fæti á 50% afslætti… ég ákvað að slá til. Voðalega kósý lýsing hjá mér núna hehe. Hver veit nema ég skelli inn mynd við tækifæri
Aaaah nú eru bara hmmm 15 dagar í að ég skunda heim í jólaknúsin
hlakka nú soldið mikið til sko hehe. Voðalega er ég heppin að eiga svona góða vini og fjölskyldu að ég sakna þeirra þegar ég er svona í útlöndum hehe
þangað til næst lömbin mín… Britta
leti leti
24. nóvember 2008
já… leti… það er e-ð viðloðandi núna! Bloggleti… að vakna leti… að taka til leti… plehh nenniggi nenniggi. Sit núna í tíma og er bara að sofna! Annars er nú bara lítið að frétta sossum. Hef bara verið að gera artí fartí verkefni í skólanum og svona… voða gaman reyndar hehe. Allt orðið soldið jólalegt hérna, snjór og frost og jólaskraut út um allt. Kem heim eftir 25 daga… er bara farin að hlakka svo mikið til að það er silly!
Æjhh ég hef ekkert að segja… hehe
Þangað til næst… Britta
trallarí
15. nóvember 2008
já… ég veit ekki… sossum ekki mikið að frétta. Búin að fá einkunn úr fyrsta áfanganum og ég vara alls ekki lægst hahaha. Meðal einkunnin var 6,7 og ég fékk 7. Er bara alveg sátt við það svona úr fyrsta áfanga.
Búin að ákveða jólagjafir fyrir flesta… finnst ég vera ótrúlega snemma í því hahaha.
Fór í smá partý í gær, voða kósý bara. Var í lítilli hliðargötu út frá Vesterbrogade, sem liggur samsíða Istegade…. svo þegar ég var að hjóla heim þá sá ég úrvalið af svörtum hórum. Þær sumsé hanga á götuhornum sem snúa að Vesterbrogade.Þær höfðu líka pimpa… stóð alltaf svartur maður hjá kannski tveimur þremur stelpum. Var nú svo heppin að kærastinn hennar Mörtu hann Siggi gat skutlað okkur í partýið í gær á svona stórum svörtum amerískum pikkup, settum hjólin á pallinn. Algjörar prinsessur hehe. Hann tók okkur smá rúnt svona að sýna okkur hvar hórurnar chilluðu. Það fyndna eða sorglega var að þegar hann kom þarna keyrandi á trukknum þá byrjuðu þessar aumingjans litlu hórur (hah fyndið að geta sagt þetta og meint þetta ekki illa haha) að dilla sér… ekki einu sinni sexy. Bara svona skökuðu mjöðmunum frá hægri vinstri. Versta var að þær litu út fyrir að vera svona 15 ára! Æjhh hvað maður er nú heppinn að hafa fæðst í réttum hluta heimsins og í góða famelíu.
Núna er bara letilegur laugadagur… á að vera að gera verkefni en pleehhh nenniggi. Rigning úti og svona grátt veður… er ennþá bara í náttfötunum uppi í sófa að horfa á tv hehehe. Æjhh það má alveg á svona dögum
Jæja þangað til næst bjútífúll pípúl… Britta
Aaahh… ein heima hehe
10. nóvember 2008
Jæja nú jæja… síðasta vika var nú aldeilis viðburðarík hehe. Var nú búin að segja frá því öllu saman. Pabbi og mamma komu með mér frá stokkhólmi til kaupmannahafnar. Þau leigðu fínasta fína bílinn og keyrðu með mig í öll snobb hverfin og sýndu mér hvar þau ólu manninn á meðan þau bjuggu hér. Sumsé fóru með mig í Gamel Holte, þar sem þau rigguðu eins og einu og hálfu húsi upp hehe. Borðuðum svo á Vita sem er gamall staður sem serverar gamaldags danskan mat… fékk mér fleskestige eða hvernig svo sem það er nú skrifað, og pabbi fékk sér önd og mamma steik hehe. Allt mjög flott og fínt. Þessi staður er rétt hjá konunglega leikhúsinu og serverar mat alveg til kl 5 á morgnanna, sumsé þegar leikararnir eru búnir að leika úr sér hjartað, þá fara þeir og slarfa í sig steik þarna á Vita hehe. Sunnudags morguninn fór í það að leita að hinu fullkomna bakaríi þar sem væri hægt að sitja og borða bakaríis brauðmeti hehe. Þetta tók heila eilífð… en tókst að lokum haha. Ferðin hjá þeim endaði nú ekki nógu skemmtilega. Pabbi fékk svo hrikalegt tak í bakið að hann gat ekki gengið. Átti að fara á sunnudeginum en frestaði ferðinni þangað til í dag og þau fóru um hádegið í dag. Eins gott og það var að hafa þau og gaman að sjá þeirra slóðir hér, þá var nú aaansi gott að fá pleisið út af fyrir sig aftur heheh. Ekki búin að sofa í mínu rúmi síðan tjahh sunnudaginn þar síðustu helgi.
Það byrjaði ný stuttönn í dag, eða blokk eins og það heitir hér. Verð í tveimur áföngum núna og átti að mæta í tíma í þeim báðum í dag, en ég sniglaðist bara heim í hádeginu, var svo ótrúlega þreytt og ómöguleg e-ð. Djö var gott að koma heim og vera bara á nærbuxunum upp í sófa og vera bara sjálf hahaha.
Fórum að skoða svæði í dag sem við eigum að hanna og næsta verkefni fjallar um. Á leiðinni þangað innan skólalóðarinnar þá kom líka þessi galvaska stelpa á svona gaffallyftara með eitt stykki risa gylltu….svín… á gafflinum… dautt! hahahaha kroppurinn svona jigglaði þegar hún keyrði oní holur og svona… Hvanneyri hvað segi ég nú bara hahah!
Er farin að hlakka ískyggilega mikið til að koma heim til Íslands fyrir jólin. 39 dagar í dag… kem 19.des.. jibbí
Þangað til næst fallega fólk…. Britta
